Við erum bræðurnir Hrafnkell og Kári



Um okkur:
Lilypie 4th Birthday Ticker






Hrafnkell: Ég fæddist á Landspítalanum 10. janúar 2006 kl. 03.00 og er því steingeit. Ég var 53 cm og 4105 gr (rúmar 16 merkur), rosa flottur og stór strákur. Ljósmóðirin sem var svo heppin að taka á móti mér heitir Sigríður. Pabbi, Auður amma og Erla amma voru líka öll viðstödd fæðinguna mína.
Hárið mitt er dökkt og augun mín líka. Núna er ég orðinn algjör glókollur og augun mín eru móleit.





Kári: Ég fæddist í Hreiðrinu á Landspítalanum þann 22. október 2008 kl. 14.02. Ég var 52 cm og 3535 gr (14 merkur). Ég var svolítið að flýta mér í heiminn en ég kom eftir 38 vikur í bumbunni á mömmu. Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Jóhanna Hauksdóttir en pabbi var líka viðstaddur. Sóley frænka kom svo um leið og ég kom í heiminn til að sjá mig og taka myndir af mér.
Ég fæddist dökkskolhærður og með dökk augu. Það verður gaman að vita hvort ég verði eins mikill glókollur og stóri bróðir.
Lilypie 1st Birthday Ticker

Mamma okkar heitir Berglind (´79) og pabbi okkar heitir Víðir (´76). Við eigum líka "stóra" voffasystur sem heitir Serena.




Við eigum fullt af ömmum og öfum. Í móðurætt eru það Auður amma og Geiri afi og í föðurætt eru það Erla amma og Reynir afi. Við eigum líka eina langömmu, hana ömmu Unni, sem er amma mömmu minnar. Langamma Unnur er núna komin til Guðs. Hún dó 12. apríl 2007 eftir erfið veikindi. Auður amma og Geiri afi eru með heimasíðu sem þið ættuð endilega að kíkja á.





Við eigum fullt af frændfólki. Systur mömmu heita Sóley Ósk og Auður Sif. Pabbi á eina systur, hana Rakel og einn hálfbróður, hann Jonna.
Bryndís stóra frænka mín og Freyja litla frænka mín er dætur hennar Sóleyjar. Þær systur eiga líka hálfbróður - hann Örnólf sem býr í Þýskalandi.
Arnheiður Erla, Benedikt og Brynja Kristín eru líka frændsystkini mín en þau eru börnin hennar Rakelar.






Hrafnkell

Nafn þetta er leitt af dýrsheitinu hrafn og viðliðnum "kell" sem merkir ketill, - hjálmur.

Fallbeyging

nf : Hrafnkell
þf : Hrafnkel
þgf: Hrafnkeli / Hrafnkatli
ef : Hrafnkels

Kári

Nafnið er líklega dregið af orðinu kárr sem merkir hrokkið hár. Nafnið er einnig notað sem persónugervingur vinds. Hugsanlega er sú notkun tilkomin vegna Rómverska nafninu á norðvestanvindinum, Caurus eða Corus.

Fallbeyging

nf : Kári
þf: Kára
þgf : Kára
ef : Kára





Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar.

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.


Vinir mínir

Bryndís og Freyja bestu frænkur okkar
Bríet
Erlen Inga og Guðmundur Árni
Hrafnhildur Lóa
Rebekka Rán
Sigríður Svava
Adam Ernir
Svala og Skarphéðinn Orri
Ísak Tumi og Marit Erla
Brynjar Ingi
Sölvi Freyr



Þú ert gestur nr. 22642